Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, mun á morgun undirrita reglugerð sem felur í sér friðlýsingu Jökulsárlóns og nærliggjandi svæðis sem hluta Vatnajökulsþjóðgarðs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Undirritunin mun fara fram við Jökulsárlón en að henni lokinni verður haldið að Fjallsárlóni þar sem ráðherra og Vatnajökulsþjóðgarður bjóða til móttöku í tilefni friðlýsingarinnar. Fjallsárlón er meðal þeirra svæða sem ganga inn í þjóðgarðinn við friðlýsinguna.
Íslenska ríkið nýtti forkaupsrétt á jörðinni Felli við Jökulsárlón fyrr á árinu og komst lónið þar með í eigu almennings. Deilt var um það á sínum tíma að vegna mistaka hjá sýslumanni hafi forkaupsréttur verið runninn út þegar ríkið keypti jörðina en að endingu fór málið á þá leið að íslenska ríkið eignaðist Fell.