Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði nú klukkan 13 í dag friðlýsingu Jökulsárlóns og umfangsmikilla svæða sem liggja að lóninu. Með friðlýsingunni var svæðið um leið fellt inn í Vatnajökulsþjóðgarð.
Nær þjóðgarðurinn nú frá hæsta tindi landsins niður að fjöru en breytingin felur í sér að hluti þjóðvegar 1 liggur nú í gegnum þjóðgarð í fyrsta sinn að því er segir í tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.
Friðlýsingin tekur til jarðarinnar Fells og nærliggjandi þjóðlenda en jörðin nær yfir Jökulsárlón að hluta og á landamerki að þjóðlendum vestan við lónið og norðaustur af Felli. Með friðlýsingunni hafa fyrrnefnd svæði verið felld inn í Vatnajökulsþjóðgarð, alls um 189 ferkílómetrar, og er Vatnajökulsþjóðgarður þar með orðinn 14.141 ferkílómetri að flatarmáli.
„Sérstaða landsvæðisins er mjög mikil. Það er mótað af framgangi og hopi jökla og einkennist af sérstæðum jökulöldum. Ein helsta náttúruperla svæðisins er Jökulsárlón sem er stærsta og þekktasta jaðarlón á landinu. Með friðlýsingunni nær Vatnajökulsþjóðgarður nú einnig yfir stóran hluta Breiðamerkursands og meginhluta Fjallsárlóns. Á öllu þessu svæði er rekin umfangsmikil ferðaþjónusta.
Með því að fella svæðið inn í Vatnajökulsþjóðgarð er verndun og stjórnun þess betur samræmd, m.a. hvað varðar umgengni og öryggi ferðamanna. Svæðið er hluti rekstrareiningar suðursvæðis þjóðgarðsins og svæðisráðs sem er undir formennsku sveitarfélagsins Hornafjarðar,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Fram undan hjá Vatnajökulsþjóðgarði eru því verkefni sem snúa að uppbyggingu innviða og landvörslu á svæðinu en friðlýsingin er talin styrkja tilnefningu Vatnajökulsþjóðgarðs sem náttúruminja á heimsminjaskrá UNESCO sem unnið hefur verið að um nokkurt skeið.
Gengið var frá kaupum ríkisins á Felli í Suðursveit í janúar á þessu ári. Fögrusalir ehf. keyptu jörðina Fell fyrr um veturinn en ríkið nýtti þá forkaupsrétt sinn. Lögum samkvæmt hafði ríkið 60 daga til að ganga inn í kauptilboðið en tilkynning ríkisins barst eftir 66 daga.
Í kjölfarið kærðu Fögrusalir ehf. ríkið á grundvelli nauðungarsölulaga en töldu héraðsdómur og Hæstiréttur Íslands að þau ættu ekki við. Var þá höfðað almennt einkamál til að fá úr því skorið hvort forkaupsrétturinn hafi verið niðurfallinn eða ekki og er það mál enn í gangi að sögn lögmanns Fögrusala.
Í samtali við mbl.is í gær sagði Hróbjartur Jónatansson, lögmaður Fögrusala, að umhverfisráðherra hafi mátt vita af dómsmálinu enda sé fjármálaráðherra í fyrirsvari fyrir málið fyrir hönd ríkisins. Hefti friðlýsingin not á eigninni og teljist forkaupsréttur ríkisins ekki gildur, eigi ríkið von á bótamáli.
„Að Björt Ólafsdóttir sé að lýsa yfir að það sé búið að leysa úr þessum ágreiningi er mjög einkennilegt vegna þess að fjármálaráðherra er í fyrirsvari fyrir málið. Tala þau ekki saman í ríkisstjórninni?“ sagði Hróbjartur.
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra kveðst í samtali við mbl.is lítið geta tjáð sig um málið. Hann þekki ekki hvar málið sé statt og það hafi ekki komið inn á hans borð að undanförnu. Kveðst hann þó efast um að friðlýsingin muni hafa áhrif á eða raska því einkamálinu sem enn er í gangi.
„Eignirnar heyra undir fjármálaráðuneytið en ég hef ekkert fylgst með því síðan, þeim málarekstri. Ég bara vissi að það væri í gangi,“ segir Benedikt.