„Það eru ennþá lausir miðar til Eyja á morgun en það er allt að verða uppselt frá Eyjum á mánudag,“ segir Gunnlaugur Grettisson, framkvæmdastjóri Sæferða, um aðsókn í ferjuna Akranes. Sala í ferðir ferjunnar til Eyja hófst í gær, en stór hluti miða er þegar seldur.
Eftir hádegi í gær voru settir í sölu miðar í tólf ferðir til og frá Eyjum yfir Þjóðhátíð. Í hverja ferð komast hundrað manns. Þegar hefur tveimur ferðum verið bætt við og er því alls um að ræða 1.400 miða, en að sögn Gunnlaugs hafa um þúsund miðar verið seldir til þessa.
Þá segir hann að til standi að bæta við ferðum á laugardag og sunnudag, eða tveimur til þremur ferðum hvorn dag.
„Þetta hefur gengið vonum framar og við erum mjög ánægð með móttökurnar. Eiginlega bara í skýjunum,“ segir Gunnlaugur.
Eimskip sótti nýlega til Samgöngustofu um heimild til að nota ferjuna Akranes til siglinga milli lands og Eyja yfir verslunarmannahelgi en Samgöngstofa hafnaði erindinu. Í framhaldi af þessu kærði Vestmannaeyjabær ákvörðun Samgöngustofu til samgönguráðuneytisins.
Samgönguráðuneyti felldi í dag úr gildi ákvörðun Samgöngustofu og fékk ferjan því heimild til að sigla til Eyja yfir Þjóðhátíð.
Ferjan fer á núverandi áætlun á tveggja tíma fresti. Ferðin með ferjunni tekur 15 mínútur svo áætlun hennar er mjög rúm eins og er. Þeir sem standa fyrir sölunni eru annars vegar Eimskip og hins vegar Þjóðhátíð. Miðinn selst á 3.000 krónur.