Átta kynferðisbrot hafa verið tilkynnt um og eftir verslunarmannahelgina, og þar af sjö tengd útihátíðum. Þetta staðfestir Hrönn Stefánsdóttir, verkefnastjóri neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis á Landspítala.
Fimm leituðu á neyðarmóttökuna um og eftir helgina, en Hrönn hefur einnig veitt ráðgjöf í einu máli til viðbótar. Þá hefur hún fengið upplýsingar um hin málin tvö.
Fjögur brotanna voru framin í Vestmannaeyjum, tvö á Suðurlandi og eitt á höfuðborgarsvæðinu.
Er þetta aukning frá því um verslunarmannahelgina í fyrra þegar sex brot komu upp, og eitt var tengt útihátíð. Spurð um þessa aukningu segist Hrönn halda að hún stafi af vitundarvakningu um kynferðisbrot í samfélaginu, og þá staðreynd að brotaþolar viti að þeir geti leitað sér aðstoðar.
Bæði málin á Suðurlandi komu upp á tjaldsvæðum og eru þau til rannsóknar hjá lögreglu og var allavega einn maður handtekinn í tengslum við seinna málið.
Enginn er þó enn í haldi, en vitað er hverjir hinir grunuðu eru.
Lögreglan í Vestmannaeyjum sagði á Facebook-síðu sinni í gær að þrjú kynferðisbrotamál væru þar til rannsóknar eftir helgina.
Tilkynnt hafi verið um eitt brot aðfaranótt laugardags, á tjaldsvæðinu í Herjólfsdal og hinn grunaði handtekinn. Þá hafi verið tilkynnt um tvö kynferðisbrot til viðbótar aðfaranótt sunnudags. Átti annað brotið sér stað á laugardagsmorgninum í heimahúsi en hitt á tjaldstæðinu í Herjólfsdal. Voru hinir grunuðu einnig handteknir í þeim málum, en ekki hafa verið lagðar fram kærur vegna málanna.
Metfjöldi mála á einum mánuði kom á borð neyðarmóttökunnar í júlí, þegar tuttugu og átta manns leituðu þangað. Samtals hefur 41 einstaklingur leitað til neyðarmóttökunnar í júní og júlí, og 110 það sem af er ári. Í fyrra leituðu fleiri en nokkru sinni á neyðarmóttökuna, en þá voru 169 komur skráðar.