Meiriháttar læknisfræðilegt afrek

„Ég held að þetta sé eitt stærsta afrek í íslenskri …
„Ég held að þetta sé eitt stærsta afrek í íslenskri fjallamennsku og auðvitað bara læknisfræðilega er þetta líka meiriháttar afrek," segir Tómas Guðbjartsson læknir um John Snorra. Ljósmynd/Kári G. Schram

„Það er al­veg aug­ljóst að lífeðlis­fræðilega hlýt­ur hann að vera gríðarlega sterk­ur í hæð og þola þunna loftið vel, það fæst ekki bara með þjálf­un,“ seg­ir Tóm­as Guðbjarts­son lækn­ir í sam­tali við mbl.is. Hann seg­ir þau af­rek sem John Snorri hef­ur unnið á síðustu mánuðum ekki á allra færi.

Aðlög­un­ar­ferlið lækn­is­fræðilegt und­ur

„Ef ég myndi taka þig og setja á topp­inn á K2 þá mynd­ir þú bara líða út af og deyja á nokkr­um mín­út­um,“ seg­ir Tóm­as og bæt­ir við að sú aðlög­un sem þarf til þess að lík­am­inn venj­ist slíkri hæð sé gríðarleg vinna.

„Þetta er mjög flókið ferli og bara lækn­is­fræðilegt und­ur í raun­inni. Meðal ann­ars þá fram­leiðir blóðið miklu meira af rauðum blóðkorn­um til þess að ná bet­ur því súr­efni sem er í boði, blóðið verður mjög þykkt. Lung­un anda hraðar og dýpra og hjartað dæl­ir hraðar og dæl­ir meira í hverju slagi,“ út­skýr­ir Tóm­as.

Ekki síður and­leg­ur styrk­ur sem þarf til

Tóm­as seg­ir að þótt hann sé ekki bú­inn að gera rann­sókn­ir á John Snorra sé aug­ljóst af af­rek­um hans að hann sé bæði gríðarlega sterk­ur íþróttamaður og út­halds­góður í hæð. „Svo má ekki gleyma því að það er ekki síður and­leg­ur styrk­ur sem þarf til þess að klára svona verk­efni,“ seg­ir hann.

„Þú þarft jafn­vel að bíða í tjaldi svo sól­ar­hring­um skipt­ir og halda and­legri heilsu til þess að tak­ast á við verk­efnið,“ seg­ir Tóm­as. Hann seg­ir mik­il­vægt að átta sig á því að af­rek Johns Snorra séu ekki eitt­hvað sem all­ir geti gert. „Það hafa verið gerðar rann­sókn­ir á bestu fjalla­mönn­um heims á rann­sókn­ar­stof­um til þess að reyna að kom­ast að því hvað skil­ur þá frá öðrum,“ seg­ir hann bæt­ir við ekki sé komið end­an­legt svar við því.

Tómas Guðbjartsson, yfirlæknir á Landspítalanum.
Tóm­as Guðbjarts­son, yf­ir­lækn­ir á Land­spít­al­an­um. mbl.is/​Krist­inn Ingvars­son

Fæst ekki bara með þjálf­un

„Fjall eins og K2 tek­ur rosa­lega á lík­amann og ég tala nú ekki um að taka Broad Peak og Lhot­se líka. Hvert fyr­ir sig er meiri­hátt­ar af­rek,“ seg­ir Tóm­as.

„Ég held að þetta sé eitt stærsta af­rek í ís­lenskri fjalla­mennsku og auðvitað bara lækn­is­fræðilega er þetta líka meiri­hátt­ar af­rek," seg­ir hann og bæt­ir við að þetta taki á vöðva og fitu­forða lík­am­ans og sýni styrk Johns Snorra.

Ekki eins og skrá sig í maraþon

John Snorri byrjaði á því að klífa fjallið Lhot­se í maí áður en hann kleif K2 í júlí. Hann ákvað svo að klífa Broad Peak í lok­in. „Þetta er mjög flott lagt upp hjá hon­um og ég held það hefði verið erfitt að fara á K2 án þess að vera bú­inn með annað fjall áður,“ seg­ir Tóm­as. En tind­arn­ir þrír eru all­ir yfir 8000 metra háir. 

„Ég held það megi ekki gleym­ast að þetta er ekki eins og að skrá sig í maraþon og byrja að hlaupa, svo áttu vond­an dag og þá ferðu bara í annað maraþon. Þú ert stadd­ur á K2 þar sem þú veist að einn af hverj­um fjór­um kem­ur ekki til baka og það eru snjóflóð, grjót­hrun og veðurfars­leg­ar aðstæður sem þú ræður ekki við,“ seg­ir Tóm­as og ít­rek­ar að gríðarleg­an and­leg­an styrk þurfi til, ekki síður en lík­am­leg­an.

John Snorri og Kári G. Schram eru á heim­leið en þeir komu í gær til Skar­du eft­ir maraþon­göngu frá grunn­búðum K2. 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert