Fjallahjólreiðakeppnin WOW Glacier 360 er í fullum gangi en keppnin hófst í gær. Hjólað verður frá Húsafelli inn á Hveravelli í dag.
Í keppninni er hjólað í kringum Langjökul á þremur dögum, samtals 290 kílómetra.
Keppnin var haldin í fyrsta sinn í fyrra. Eingöngu er keppt í paraflokkum og er þetta eina fjöldaga fjallahjólakeppnin á Íslandi.
Dagleiðirnar eru á bilinu 85 til 111 km langar.