Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú andlát ungs manns sem tók sitt eigið líf á geðdeild Landspítala aðfaranótt föstudagsins síðasta. Í samtali við mbl.is segir Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn að ekki hafi borist kæra vegna atviksins, en lögregla rannsaki alltaf mál af þessu tagi, þegar fólk fellur frá með voveiflegum hætti.
Fara nú meðal annars fram skýrslutökur, þar sem reynt er að varpa ljósi á atburðarásina áður en maðurinn svipti sig lífi. Hafði hann verði fluttur á geðdeildina um hálfum sólarhring áður í sjálfsvígshættu.
Í yfirlýsingu frá Landspítala fyrr í vikunni kom fram að málið væri litið alvarlegum augum og yrði rannsakað ítarlega. Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra sagði í samtali við mbl.is á þriðjudag að hann tæki undir með stjórnendum spítalans um að atvik sem þetta ættu ekki að geta gerst.
Embætti landlæknis bíður enn eftir nánari upplýsingum frá Landspítala um málið, en greint var frá því á mbl.is að tilkynning sem spítalinn sendi embættinu hefði ekki verið fullnægjandi. Kom þar aðeins fram að atvikið hafi orðið, en það voru ófullnægjandi upplýsingar fyrir embættið til að geta hafið rannsókn.
Lýst var eftir manninum aðfaranótt fimmtudags og fór fram umfangsmikil leit í kringum Kársnes. Hann fannst heill á húfi og var færður á geðdeild. Aðstandendum mannsins var létt, þar sem þeir töldu að hann væri öruggur. Hann hafði verið á geðdeild í um hálfan sólarhring þegar komið var að honum látnum.