Hálslón er nú komið á yfirfall en yfirborð lónsins náði 625 metrum yfir sjávarmáli aðfaranótt síðastliðins laugardags, 19. ágúst.
Þegar vatn rennur á yfirfalli myndast fossinn Hverfandi við vestari enda Kárahnjúkastíflu niður að gljúfurbarminum. Þaðan steypist vatnið 90-100 metra niður í Hafrahvammagljúfur.
Fossinn er aflmikill og getur orðið vatnsmeiri en Dettifoss, að því er fram kemur í frétt á heimasíðu Landsvirkjunar. Misunandi er hve snemma sumars Hálslón kemst á yfirfall. Árið 2010 hefur vinninginn, en þá komst lónið á yfirfall 28. júlí. Hins vegar fór lónið ekki á yfirfall fyrr en 9. október árið 2015.