Hæstiréttur Íslands hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur vegna málsóknar þriggja hópa á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni og vísað málunum aftur til héraðs.
Hæstiréttur hefur jafnframt dæmt Björgólf Thor til að greiða hópunum þremur 600 þúsund krónur hvorum um sig í kærumálskostnað.
Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í júní frá hópmálsókn gegn Björgólfi Thor og var þeim úrskurði skotið til Hæstaréttar Íslansd.
Dómstólar höfðu áður vísað hópmálsókninni frá á þeirri forsendu að hluthafahópurinn væri ekki nægilega einsleitur.
Þrjú hópmál voru þá höfðuð á hendur Björgólfi þar sem fyrrverandi hluthöfum Landsbankans var skipt upp í hópa eftir því hversu lengi þeir höfðu átt bréf í bankanum.
Stefnendurnir telja að Björgólfur hafi með saknæmum hætti komið í veg fyrir að hluthafar Landsbankans fengju upplýsingar um umfangsmiklar lánsveitingar og einnig að hann hafi brotið reglur um yfirtöku. Hópmálsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.