Sturla Sigurjónsson sendiherra hefur verið skipaður í embætti ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins af Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra og tekur hann við embættinu á morgun af Stefáni Hauki Jóhannessyni sem fer til starfa erlendis. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
„Stefán Haukur Jóhannesson, sem hefur verið ráðuneytisstjóri frá árinu 2014 fer til starfa erlendis en mun fram að brottför stýra verkefnum sem tengjast útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu (Brexit). Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra, sem hefur annast þau verkefni fer til starfa erlendis um áramót,“ segir enn fremur.
Þá kemur fram að Sturla Sigurjónsson eigi að baki 30 ára feril í utanríkisþjónustunni og hafi síðast gegnt stöðu sendiherra Íslands í Kanada. „Þar áður var hann sendiherra í Danmörku, ráðgjafi forsætisráðherra um utanríkismál og sendiherra á Indlandi. Í starfi sínu hefur hann gegnt ýmsum ábyrgðarstöðum og m.a. verið skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu og áður varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.“