Umhverfisstofnun hefur ákveðið að stöðva rekstur United Silicon. Þetta kemur fram í tilkynningu til fjölmiðla á níunda tímanum í kvöld.
Umhverfisstofnun tilkynnti United Silicon í síðustu viku að hún áformaði að stöðva starfsemi kísilversins ef annaðhvort afl ljósbogaofns verksmiðjunnar færi niður fyrir 10 MW eða stöðvaðist í klukkustund eða meira, þó eigi síðar en 10. september. Ekki yrði þá heimilt að endurræsa ofninn nema með skriflegri heimild að loknum endurbótum og mati á þeim.
Í ákvörðun Umhverfisstofnunar kemur fram að rekstur kísilversins hafi í för með sér veruleg óþægindi fyrir íbúa í nánasta umhverfi verksmiðjunnar. Einnig hafi borist kvartanir frá starfsmönnum annarra fyrirtækja á iðnaðarsvæðinu.
„Þrátt fyrir auknar mælingar liggur enn sem komið er ekki fyrir skýring á því hvaða efni valda ólykt frá kísilverinu sem lýst hefur verið í kvörtunum íbúa og staðfest hefur verið við eftirlit. Sóttvarnalæknir hefur fylgst með málinu og starfað með Umhverfisstofnun að mati á áhrifum starfseminnar. Þau einkenni sem gerð hefur verið grein fyrir geta t.d. stafað af anhýdríðum sem mælst hafa og/eða formaldehýði,“ segir í niðurstöðu Umhverfisstofnunar.
„Þrátt fyrir tilteknar bætur í aðdraganda heimildar til enduruppkeyrslu á ný hafa komið upp frekari bilanir í búnaði. Einnig hafa mistök í rekstri leitt til atvika sem haft hafa í för með sér mengun. Telur Umhverfisstofnun því nauðsynlegt að farið verði ítarlega yfir gæði framleiðslu- og mengunarvarnabúnaðar m.t.t. öryggis mengunarvarna,“ segir þar enn fremur.
Segir einnig í niðurstöðu Umhverfisstofnunar að frávik frá starfsleyfi United Silicon, einkum varðandi lyktarmengun, séu alvarleg. „Stofnunin telur ekki viðunandi að íbúar í nágrenni verksmiðjunnar búi við þau verulegu óþægindi sem rekstur verksmiðjunnar hefur í för með sér.“