Jarðfræðingurinn Sigurjón Valgeir Hafsteinsson, sem er yfir neyðarvörnum hjá Rauða krossinum á Suðurlandi, varð vel var við jarðskjálftana nú í kvöld.
„Við sátum og vorum að horfa á sjónvarpið,“ segir Sigurjón sem er búsettur á Selfossi. „Við urðum vör við skjálftann sem varð 20:40 sem mældist 2,9. Síðan komu þessir tveir skjálftar rétt fyrir tíu með nokkurra sekúndna millibili. Annar var 2,4 og sá seinni var 3,6. Þá drundi í öllu og hristist allt og það hrundi hér úr hillum og brotnaði aðeins.“
Spurður hvort skjálftinn hafi vakið ótta hjá mönnum, segir hann: „Fólki bregður auðvitað við og aumingja hundurinn er skíthræddur.“
Sigurjón kveðst annars vera búinn að vera með tölvuna í fanginu í allt kvöld til að fylgjast með skjálftahrinunni, enda hafi hann gaman af að finna fyrir jarðskjálftum og muni því fylgjast vel með áfram. Hann segir það heldur ekki koma sér á óvart þó að það héldi áfram að hristast í kvöld og nótt.
„Við erum búin að fara um húsið og taka niður af veggjum og úr hillum til að reyna að tryggja það sem getur farið á stað ef það kemur stærri skjálfti.“
Skjálftahrinan er ekki á gossvæði, að sögn náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands, heldur er hún á Suðurlandsskjálftabeltinu. Sama belti og hrökk þegar stóru skjálftarnir 2008 komu.