Talsverðar umferðartafir eru nú í Ártúnsbrekkunni eftir aftanákeyrslur þar sem þrír bílar lentu í árekstri. Samkvæmt Guðbrandi Sigurðssyni, aðalvarðstjóra í umferðardeild, var þó um minni háttar slys að ræða og segir hann að umferðartöfin ætti að leysast á allra næstu stund.