Ásgeir Trausti fór á kostum á Grund

Ásgeir Trausti og pabbi hans, Einar Georg Einarsson, léku fyrir …
Ásgeir Trausti og pabbi hans, Einar Georg Einarsson, léku fyrir heimilisfólk á Grund. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti hélt heldur óvenjulega tónleika í morgun en hann spilaði á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund ásamt föður sínum, Einari Georg Einarssyni. 

Tónleikarnir voru svokallaðir „off venue“-tónleikar á Airwaves-hátíðinni, sem hefst formlega síðar í dag. „Það var troðfullt út úr dyrum en það komu miklu fleiri en í fyrra og árið þar áður,“ segir Guðbjörg R. Guðmundsdóttir, samskipta- og kynningarfulltrúi Grundar, en tónleikar í tengslum við Airwaves-hátíðina hafa verið haldnir á Grund undanfarin ár.

Fólk naut ljúfra tóna.
Fólk naut ljúfra tóna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta voru skemmtilegir tónlistarmenn og þeir spiluðu tónlist sem höfðaði til heimilisfólks,“ segir Guðbjörg en auk heimilisfólks kom talsverður fjöldi erlendra ferðamanna til að fylgjast með Ásgeiri Trausta. Auk þess var hópur af leikskólabörnum sem fylgdist með tónleikunum.

Frá tónleikunum í morgun.
Frá tónleikunum í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Heimilismenn kunnu vel að meta þetta og finnst skemmtilegt að hlusta á unga fólkið spila, þótt pabbi hans Ásgeirs Trausta sé ekki ungur,“ segir Guðbjörg og hlær.

„Ásgeir er einstakur og höfðar til allra.“

Salurinn var þétt setinn.
Salurinn var þétt setinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Ungir og aðeins eldri fylgjast með af áhuga.
Ungir og aðeins eldri fylgjast með af áhuga. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert