Vökvinn falinn í flöskum í bensíntanki

Norræna í höfn.
Norræna í höfn. mbl.is/Sigurður Bogi

Amfetamínvökvinn sem tollverðir fundu í Norrænu í byrjun síðasta mánaðar var falinn í 23 hálfs lítra plastflöskum í bensíntanki bifreiðar sem tveir pólskir karlmenn komu með til landsins. Úr vökvanum, sem reyndist vera 11,5 lítrar, hefði mátt vinna 90–100 kíló af amfetamíni.

Tollayfirvöld hér unnu málið í góðu samstarfi við tollgæsluna  í Færeyjum, segir í tilkynningu.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar það í samvinnu við lögregluna á Austfjörðum.

Tollstjóri minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Einnig má koma ábendingum  um smygl inn á símsvara 5528030 hjá embætti Tollstjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert