Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hófst á miðvikudag en gríðarleg stemning var á öðru kvöldi hátíðarinnar í gær. Ljósmyndari mbl.is var á ferðinni og myndaði þá stemningu sem var í gangi í miðborg Reykjavíkur þar sem tónlistarunnendur drukku í sig íslenskar tónbylgjur.
Hip-hop var áberandi, líkt og kvöldið áður, í Listasafni Reykjavíkur. Þar komu meðal annars fram Úlfur Úlfur, Emmsjé Gauti og Aron Can. Reykjavíkurdætur luku kvöldinu þar með miklum látum.
Meðal annarra sem trylltu lýðinn í gærkvöldi voru Grísalappalísa, HATARI, Vök og Dr. Spock, þar sem Óttarr Proppé var með gula hanskann á lofti. Megas bauð upp á ljúfa tóna í Þjóðleikhúsinu.
Dagskrá hátíðarinnar má nálgast hér.