Maður, kona og barn, sem voru flutt á Sjúkrahús Akureyrar fyrr í kvöld eftir að bifreið þeirra fór í sjóinn við höfnina á Árskógssandi, hafa verið úrskurðuð látin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Ekki er hægt að greina frá nöfnum hinna látnu að svo stöddu. Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að sinni, að því er kemur fram á facebooksíðu lögreglunnar.
Bíllinn fór fram af bryggjunni á Árskógssandi um hálfsexleytið.