Minningarathöfn verður haldin klukkan 18.00 í Hríseyjarkirkju í kvöld þar sem fjölskyldunnar sem fórst á Árskógssandi á föstudagskvöld verður minnst.
Talið er að foreldrar með ungt barn hafi verið á leiðinni í Hríseyjarferjuna Sævar þegar bíll þeirra fór í sjóinn við ferjubryggjuna síðdegis á föstudag með þeim afleiðingum að þau létust. Ekki er unnt að greina frá nöfnum þeirra að svo stöddu.
Sóknarpresturinn Magnús S. Gunnarsson segir marga í áfalli vegna atviksins en með honum í kvöld verði áfallateymi frá Rauða krossinum.