Tilkynnt var um útafakstur rétt austan við Bitru í nótt. Þegar lögreglan kom á staðinn reyndist um stolinn bíl að ræða.
Ökumaður og einn farþegi voru í bílnum og voru þeir báðir í annarlegu ástandi að sögn lögreglunnar á Selfossi.
Voru þeir vistaðir í fangageymslu og verða yfirheyrðir þegar ástand þeirra leyfir.