Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi eftir rútuslys sem varð við Lýsuhól á Snæfellsnesi á sjötta tímanum í dag. Ekki er unnt að greina frá líðan þeirra að svo stöddu.
Frétt mbl.is: Sex slasaðir í rútuslysi
Alls eru sex slasaðir en samkvæmt heimildum mbl.is voru 20 manns í rútunni, allt erlendir ferðamenn utan ökumaðurinn.
Lögregla, slökkvilið og björgunarsveitir aðstoðuðu við störf á vettvangi. Fljúgandi hálka og vont veður er á slysstað.