Hæstiréttur vísaði í dag máli Árna Gils Hjaltasonar aftur í hérað en hann hafði verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sá dómur hefur verið felldur úr gildi og verður málið aftur flutt fyrir héraði.
Árni Gils var dæmdur í ágúst fyrir að stinga mann með hnífi í höfuðið við Leifasjoppu í Breiðholti í Reykjavík í mars.
Að mati ákæruvaldsins bendi þessir áverkar brotaþola til þess að hnífi hafi verið beitt af miklu afli í átt að höfði hans. Framburður ákærða hafi verið á þann veg að til átaka hafa komið milli hans og brotaþola og ákærði að lokum náð hnífi af brotaþola, sem brotaþoli hafi komið með á vettvang. Ákærði hafi síðan kastað hnífnum í burtu.
Árni neitaði sök og sagði að þarna hefði orðið slys eða í versta falli sjálfsvörn enda hefði fórnarlambið komið með hnífinn á staðinn. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan 5. mars.
Árni var sakfelldur fyrir þrjú brot í héraði en Hæstiréttur staðfesti fjögurra mánaða dóm yfir honum fyrir líkamsárás og að hafa hrækt á lögregluþjón. Málið er varðar hina meintu manndrápstilraun var hins vegar sent aftur í hérað.