Krapastífla er við brúna á Jökulsá á Fjöllum á þjóðvegi 1 samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Vegfarendur eru beðnir að aka varlega þar sem flætt gæti yfir veginn.
Gott ferðaveður er annars um allt land, mikið frost og stilla. Hálka, hálkublettir eða sjóþekja er á vegum og eitthvað um éljagang með ströndinni á Norðausturlandi. Eins er éljagangur á Fagradal og Fjarðarheiði. Þæfingur er á Öxi.