Davíð Þór Björgvinsson, fulltrúi ákæruvaldsins í endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálsins og settur ríkissaksóknari, reiknar með því að skila ágripi sínu um málið til Hæstaréttar Íslands í þessari viku.
„Það er verið að fjölfalda ágripið, þ.e.a.s. skjöl málsins. Það má mikið út af bregða ef mér tekst ekki að koma þeim í Hæstarétt í þessari viku,” segir Davíð Þór en ágripið er tæpar 20 þúsund síður.
„Þetta er svo stórt og umfangsmikið að þetta tekur tíma og það er ekki hægt að flýta sér alltof mikið.”
Í framhaldi af því fær Davíð Þór sem og allir verjendur sakborninga í málinu frest til að skila sínum greinargerðum. Að því loknu ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að setja málið á dagskrá réttarins, sem yrði á næsta ári.
Davíð Þór kveðst ætla að reyna að klára greinargerð sína fyrir jól. Í henni mun hann setja fram sína kröfugerð með rökstuðningi.
Í apríl sagði hann í samtali við mbl.is að í greinargerðinni myndi hann taka afstöðu til þess hvaða kröfur hann myndi gera. „Einn möguleikinn er sá að krefjast þess að sakfellingarnar standi, eða eftir atvikum að fallið verði frá viðkomandi ákæruliðum eða ég fallist á sýknukröfu sem gera má ráð fyrir að beiðendur muni setja fram,“ sagði Davíð Þór í apríl.
Guðmundur og Geirfinnur Einarssynir hurfu sporlaust árið 1974. Endurupptökunefnd féllst í febrúar á endurupptökubeiðnir er varða fimm menn sem sakfelldir voru í tengslum við mannshvarfsmálin tvö.