Hafþór Eide Hafþórsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra. Hann hefur þegar hafið störf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Hafþór er 28 ára viðskiptafræðingur, með BSc-próf frá Háskólanum í Reykjavík auk þess sem hann hefur lokið prófi til verðbréfamiðlunar frá sama skóla. Hann hefur starfað í verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Arion banka undanfarið ár en starfaði áður sem verkefnastjóri hjá Iceland Travel, á rekstrarsviði Air Atlanta, bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar og í mannauðs- og upplýsingateymi Alcoa Fjarðaáls. Þá stýrði hann sögusafninu Fransmenn á Íslandi á Fáskrúðsfirði í tvö sumur.
Hafþór hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn. Hann var formaður Sambands ungra framsóknarmanna árið 2013 og kosningastjóri flokksins í Reykjavík í nýafstöðnumalþingiskosningum.
Hafþór er í sambúð með Ármanni Lloyd Brynjarssyni, starfsmanni Icelandair hótela.