Mikil óvissa er um fjölda umsækjenda um vernd á næsta ári en gera má ráð fyrir fjölgun bæði tilhæfulausra umsókna um vernd og einnig umsókna þar sem tilvik eru flóknari, að því er kemur fram í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár.
Þar segir að stefnt sé að lækkun kostnaðar við þjónustu með hraðari málsmeðferð. Hins vegar geti hraðari málsmeðferð haft í för með sér meiri kostnað í byrjun sem lækki til lengri tíma litið.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2018 er áætluð 3.673 milljónir króna og hækkar um 1.828,5 milljónir frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum sem nema 87,4 milljónum.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
Fram kemur í frumvarpinu það markmið, að fjölga kvótaflóttamönnum sem Ísland tekur á móti í samstarfi við Flóttamannastofnun SÞ, í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Þá á að innleiða tillögur nefndar um fyrirkomulag heildstæðrar móttöku flóttafólks í því skyni að tryggja samræmi í þjónustu óháð því hvort það komi sem kvótaflóttafólk eða á eigin vegum.