Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, var dæmdur í fimm ára fangelsi í Stím-málinu svokallaða fyrir umboðssvik, en dómsuppsaga í málinu var í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þetta er í annað skiptið sem málið er flutt í héraðsdómi en Hæstiréttur ómerkti niðurstöðu fyrra málsins og vísaði á ný í hérað.
Jóhannes Baldursson, sem var framkvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis var dæmdur í 2 ára fangelsi í málinu, einnig fyrir umboðssvik. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi bankastjóri Saga Capital, var dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir hlutdeild að umboðssvikum.
Þetta er sama niðurstaða og í fyrri meðferð málsins, en annar meðdómara málsins, Ingimundur Einarsson, vildi þó að þeir Jóhannes og Þorvaldur yrðu sýknaðir. Meirihluti dómsins, þau Símon Sigvaldason og Hrefna Sigríður Briem, stóðu fyrir meirihlutaákvæðinu um sekt allra.
Málsvarnarlaun vegna málsins nema 14 milljónum hjá Lárusi og 15 milljónum hjá Jóhannesi og Þorvaldi hvorum.
Þorvaldur var viðstaddur dómsuppkvaðninguna og lét hann strax bóka að hann ætlaði að áfrýja málinu.
Þegar málið var tekið fyrir í fyrra skiptið fyrir tveimur árum voru allir ákærðu fundnir sekir. Lárus var dæmdur í fimm ára fangelsi, Jóhannes í 2 ára fangelsi og Þorvaldur í 18 mánaða fangelsi fyrir hlutdeild að brotunum.
Frétt mbl.is: Lárus Welding í 5 ára fangelsi - dómur í fyrri umferð málsins árið 2015
Þeir áfrýjuðu síðar málinu til Hæstaréttar og tók rétturinn fyrir meint vanhæfi dómara í málinu. Var í dómi Hæstaréttar vísað til þess að Sigríði Hjaltested, dómara í málinu, hafi brostið hæfi til að dæma í málinu. Sigríður sagði sig frá öðru hrunmáli sem Hæstiréttur segir hliðstætt þessu máli. Það gerði hún vegna tengsla þess við fyrrverandi eiginmann sinn og barnsföður, sem var með stöðu sakbornings í þremur málum hjá sérstökum saksóknara, en hann hafði verið starfsmaður Glitnis. Var því dómurinn ómerktur og sendur á ný í hérað.
Þegar í hérað var komið að nýju var tekist á um dómara og meðdómara málsins, þau Símon Sigvaldason og Hrefnu Sigríði Briem. Niðurstaðan var aftur á móti sú að þau voru talin hæf til að dæma í málinu og fór aðalmeðferð annarrar umferðar fram um miðjan nóvember.
Lárus var ákærður fyrir umboðssvik með því að hafa farið út fyrir heimildir sínar til lánveitinga hjá Glitni banka þegar hann beitti sér fyrir því að félagið FS37, sem síðar varð Stim, fengi um 20 milljarða króna lán frá bankanum með veði í öllu hlutafé félagsins og bréfum í FL Group sem lánsféð var notað til að kaupa. Lánsféð var einnig notað til að kaupa bréf í Glitni.
Jóhannes var ákærður fyrir umboðssvik fyrir að hafa beitt sér fyrir því að fjárfestingasjóðurinn GLB FX, í eigu Glitnis banka, keypti framvirkt skuldabréf í Stím af Saga Capital. Þorvaldur var ákærður fyrir hlutdeild í umboðssvikum með því að hafa hvatt til þeirra viðskipta og liðsinnt Jóhannesi í þeim. Markmiðið með viðskiptunum hafi verið að tryggja að Saga Capital fengi kröfu sína að fullu bætta.
Lárus hafði áður verið sýknaður tveimur málum, Vafningsmálinu og Aurum-málinu. Lárus hafði áður verið dæmdur í héraði í 9 mánaða fangelsi í Vafningsmálinu, en Hæstiréttur sýknaði hann svo. Í Aurum-málinu var hann sýknaður ásamt öðrum ákærðu, en Hæstiréttur ógilti niðurstöðu héraðsdóms í því máli og verður málið aftur tekið fyrir á næsta ári.
Jóhannes hlaut áður dóm í BK-44 málinu svokallaða, en í héraðsdómi fékk hann fimm ára fangelsi, sem Hæstiréttur mildaði svo niður í þriggja ára fangelsi núna í vetur.