Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hvetur landsmenn til að styrkja björgunarsveitir landsins með því að kaupa flugelda. „Ár eftir ár erum við minnt á mikilvægi þeirra,“ skrifar Guðni um björgunarsveitir landsins. Hann hvetur einnig landsmenn til að sleppa því að skjóta upp flugeldum í tíma og ótíma eftir gamlárskvöld.
„Eftir hressandi hlaup í morgun var kjörið að koma við og kaupa flugelda hjá björgunarsveitunum. Ár eftir ár erum við minnt á mikilvægi þeirra.
Við vitum líka að slys og óhöpp gera ekki boð á undan sér. Núna í vikunni brást fyrsta fólk á slysstað rétt við þegar rúta fór út af nálægt Kirkjubæjarklaustri og allir í nágrenninu boðnir og búnir að rétta hjálparhönd. Sama má segja þegar bátur steytti á skeri undan Stykkishólmi, fólk tók höndum saman. Ég færi öllum sem komu að þessum slysförum bestu þakkir fyrir þeirra þátt, við eigum frábært fagfólk og hvunndagshetjur um land allt. Þeim sem eiga um sárt að binda sendi ég líka hlýjar kveðjur,“ skrifar forsetinn í færslu sem hann birti í kvöld á Facebook-síðu sinni.
Hann veltir því einnig upp, í tengslum við þá umræðu sem hafur verið í gangi um mengun af völdum flugelda, að í framtíðinni verði flugeldar mögulega orðnir umhverfisvænir „gripir í drónalíki sem skjótast upp í loftið, forritaðir til að varpa leysigeislum og myndum um himinhvolfið, skjótast svo niður aftur til sendanda og upp á ný með nýju prógrammi.“
„En þangað til hvet ég alla sem hafa áhuga og getu til að kaupa okkar tíðar flugelda ostyrkja þannig okkar ágætu björgunarsveitir. Svo væri ekki verra ef fólk léti síðan vera að skjóta upp flugeldum í tíma og ótíma eftir gamlárskvöld. Við sjáum það til dæmis í sveitasælunni hér á Álftanesi að þetta gerir blessuðum skepnunum ekki gott.
Og munum, kæru landar, að ganga hægt um gleðinnar dyr þegar nýtt ár gengur í garð.“