Tveir líklega útskrifaðir í dag

Rútan endaði utan vegar eftir árekstur við fólksbifreið.
Rútan endaði utan vegar eftir árekstur við fólksbifreið. mbl.is/Jónas Erlendsson

Stefnt er að því að útskrifa tvo af Landspítala í dag úr hópi ferðamannanna sem fluttir voru á sjúkrahús eftir rútuslysið á miðvikudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum.

Í tilkynningunni segir að þar með verði fjórir eftir á spítalanum, þar af tveir á gjörgæslu þar sem þeir hafa verið frá því á miðvikudag. Einn lést í slysinu.

44 ferðamenn voru í rútunni sem valt vestan við Kirkjubæjarklaustur á miðvikudag. Allar þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út og voru 12 fluttir á Landspítalann. Aðrir minna slasaðir farþegar rútunnar voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands til skoðunar og aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert