Faðir kínversku stúlkunnar sem lést er rúta valt skammt frá Kirkjubæjarklaustri á miðvikudag, kom til landsins í gær. Þetta staðfestir lögreglan á Suðurlandi. Ættingjar þeirra sem slösuðust eru margir hverjir á leið til landsins.
Lögreglan vill að öðru leyti lítið gefa upp um framvindu rannsóknarinnar.
„Það er bara í vinnslu, og lítið verður gefið út um einhverjar einstaka niðustöður fyrr en búið er að bera það undir þá sem málið varðar,“ segir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi í samtali við mbl.is.
Greint var frá því í gær að til tveir væru enn í gjörgæslu vegna slyssins og fjórir á almennri deild. Þá var stefnt á að útskrifa tvo af almennri deild nú um helgina.