Veiðigjöldin verða lækkuð

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur ætlar að taka veiðigjöld í sjávarútvegi til endurskoðunar á árinu með það að markmiði að lækka gjöldin á lítil og meðalstór sjávarútvegsfyrirtæki og afkomutengja þau.

„Við erum að horfa til litlu og meðalstóru fyrirtækjanna sem eru ekki að ráða við þá miklu hækkun sem varð á veiðigjaldinu 1. september á síðasta ári,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður atvinnuveganefndar, í umfjöllun um veiðigjöldin og áformaða lækkun þeirra  í Morgunblaðinu í dag.

„Sú hækkun var mjög mikil, alveg frá 200 prósentum og yfir 300 prósenta hækkun hjá sumum. Það er farin af stað vinna í ráðuneytinu við að skoða þetta. Sú vinna á að ganga hratt fyrir sig.“

Núverandi lög sem veiðigjöldin byggjast á í dag renna út í lok þessa fiskveiðiárs og var kveðið á um breytingar á veiðigjöldunum í stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokks, Vinstri-grænna og Framsóknarflokksins þannig að gjöldin yrðu afkomutengd. Lilja Rafney segir þessar breytingar vel rúmast innan þess orðalags sáttmálans.

„Við leggjum mikla áherslu á að þessi vinna gangi hratt fyrir sig og við getum skilað einhverju frá okkur fyrir vorið í þessum efnum. Atvinnuveganefnd mun ræða þessi mál þegar þing kemur aftur saman. Þingið á líka eftir að skipa pólitískt í veiðigjaldanefnd og það verður þá sett í gang,“ segir Lilja Rafney.

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra staðfestir það í samtali við Morgunblaðið að breytinga sé að vænta.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert