Heitur pottur fauk af 13. hæð

Heiti potturinn endaði á leikskólalóð rétt hjá.
Heiti potturinn endaði á leikskólalóð rétt hjá. mbl.is/Hanna

Heitur pottur fauk niður af þrettándu hæð fjölbýlishúss við Hörðukór í Kópavogi. Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu losnaði potturinn af svölum hússins og lenti á lóð leikskólans Kórs við Baugakór.

Tilkynning um atvikið barst slökkviliðinu klukkan 7.04 í morgun.

Engin slys urðu á fólki.

Slysavarnafélagið Landsbjörg var sent á vettvang. 

mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert