„Kæran hefur ekki borist okkur enn þá og við munum ekki tjá okkur um innihaldið fyrr en við erum búin að ná að skoða málið,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við mbl.is.
Isavia mun ekki tjá sig frekar um málið fyrr en búið verður að fara yfir innihald kærunnar. Ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line (Allrahanda GL ehf.) hefur sent Samkeppniseftirlitinu kæru vegna þess sem það segir vera misnotkun Isavia á einokunaraðstöðu á Keflavíkurflugvelli.
Isavia mun hefja gjaldtöku á stæðum fyrir hópferðabifreiðar við Flugstöð Leifs Eiríkssonar 1. mars næstkomandi. Smærri hópferðabifreiðar með 19 eða færri sæti greiða 7.900 krónur og stærri bifreiðar með 20 sæti og yfir greiða 19.900 krónur.
Í fyrri umfjöllun mbl.is um málið kom fram að Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line, reiknar með að áætlunarferðir Gray Line verði um 20 til 25 ferðir á dag frá flugstöðinni frá 1. mars. Það þýði að fyritækið gæti þurft að borga í kringum 440 þúsund á dag fyrir bílastæði.