Skýrsla Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, prófessors í stjórnmálafræði, um erlenda áhrifaþætti bankrahrunsins er í yfirlestri. Ekki er ljóst sem stendur hvenær hún kemur út en ólíklegt er að það verði í þessari viku.
Þetta segir Hannes Hólmsteinn í samtali við mbl.is.
Í nóvember síðastliðnum sagðist Hannes í bloggfærslu sinni miða við að gefa skýrsluna út 16. janúar, sem er á morgun, en ljóst er að það næst ekki.
Hann ákvað að fresta skilum skýrslunnar og væntanlegri birtingu þar sem hann taldi sanngjarnt að gefa þeim sem minnst er á í skýrslunni kost á að skýra mál sitt, leiðrétta og gera athugasemdir.
Skýrslan er í kringum 315 blaðsíður að lengd og er á ensku.
Hannes Hólmsteinn hefur unnið að henni í þrjú ár en vinnsla hennar hefur dregist á langinn. Hún átti upphaflega að koma út árið 2015 samkvæmt samningi Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
„Ég leiði rök að því að það hafi verið alveg ónauðsynlegt af Bretum að beita hryðjuverkalögum á Íslendinga og reyni að skýra hvers vegna þeir gerðu það. Ég reyni líka að skýra hvers vegna Bandaríkjamenn sátu hjá og hjálpuðu okkur ekki þegar á reyndi,“ sagði Hannes um skýrsluna í nóvember.