Bæjarráð Akureyrar hefur skorað á þingmenn, ríkisstjórn, samgönguráð og Isavia að grípa nú þegar til nauðsynlegra ráðstafana til að styðja við og tryggja í sessi millilandaflug um Akureyrarflugvöll.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur einnig tekið undir bókun Ferðamálafélags Eyjafjarðar um að tryggja þurfi öruggt aðflug að Akureyrarflugvelli.
Bæjarráð Akureyrar segir brýnt að komið verði upp ILS-aðflugsbúnaði við völlinn, að því er kemur fram í fundargerð.
Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður, sem starfaði sem flugumferðarstjóri á Akureyri í aldarfjórðung, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að sinn skilningur væri að fjárveiting til kaupa á búnaðinum væri tryggð í fjárlögum sem samþykkt voru fyrir áramót.
Tilkomu millilandaflugs um Akureyrarflugvöll var einnig fagnað á fundi bæjarráðs í tengslum við ferðir ferðaskrifstofunnar Super Break sem hófust í síðustu viku.
Bæjarráðið kallar jafnframt eftir því að forsvarsmenn Isavia og formaður samgönguráðs fundi með bæjarstjórn vegna frekari framkvæmda við flugvöllinn.