Vegurinn um Víkurskarð er enn lokaður eftir að flutningabíll þveraði veginn fyrr í dag. Unnið er að opnun vegarins að nýju og fastlega er reiknað með að hann verði opnaður í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Vegurinn yfir Hófaskarð á Norðausturlandi er lokaður.
Ekki hefur komið til annarra vegalokana í dag vegna veðurs en búist var við að veginum undir Eyjafjöllum og lengra austur yrði lokað.