Samtökin Andstæðingar stóriðju í Helguvík eru að undirbúa íbúafund í Reykjanesbæ vegna stöðu sem upp er komin í tengslum við kísilver United Silicon í Helguvík. Talsmaður samtakanna segir það kröfu margra íbúa að boðað verði til bindandi kosninga um framhaldið þar sem greidd verði atkvæði um framtíð iðnaðarsvæðisins í Helguvík.
Í frétt Morgunblaðsins í dag segir hins vegar að Arion banki ætli að óska eftir því við skiptastjóra þrotabúsins að ganga að veðum sínum í eignum fyrirtækisins, koma þeim í söluferli og freista þess að koma kísilverinu aftur í gang.Þórólfur Júlían Dagsson, talsmaður Andstæðinga stóriðju í Helguvík, segir með ólíkindum að fara eigi þessa leið, nú þegar sé búið að setja mjög mikla peninga, meðal annars almannafé í gegnum lífeyrissjóðina, í fyrirtækið. „Þeir ættu nú frekar að einbeita sér að því að setja það í forgang að borga upp skuldina við lífeyrissjóðina í staðinn. Væri það ekki siðferðislega rétt?“
Hann segist óttast að lífeyrisþegar í landinu þurfi að taka á sig skerðingar vegna þeirrar fjárfestingar sem sjóðirnir fóru út í.
Í frétt Morgunblaðsins fyrr í vetur kom fram að Festa lífeyrissjóður, Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Eftirlaunasjóður Félags íslenskra atvinnuflugmanna hefðu fjárfest fyrir samtals 2.166 milljónir króna í United Silicon.
Þegar fréttir bárust af því að félagið væri komið í þrot segir Þórólfur blendnar tilfinningar hafa vaknað meðal íbúa í Reykjanesbæ. Útlit væri fyrir að margir myndu missa vinnuna en að sama skapi var fögnuður yfir því að kísilverið væri hætt starfsemi. „Ég leyfi mér að segja að meirihluti bæjarbúa hafi glaðst yfir því að þessu væri í raun loks lokið.“
Að sama skapi væri fólk mjög ósátt við þann snúning Arion banka að ætla að stofna nýtt félag um eignirnar og freista þess að koma verksmiðjunni í gang og í nýjar hendur. „Mér finnst það siðferðisleg skylda mín að benda bankanum á að ef hann ætli að setja meira fé í þetta að hann skuli borga lífeyrissjóðunum það sem fór í þetta til baka.“
Byggir Þórólfur þá skoðun sína á því að Arion banki hafi lagt fjárfestinguna til við lífeyrissjóðina á sínum tíma. „Ef þeir geta sett pening í þetta fyrirtæki og komið því aftur af stað þá ber þeim að mínu mati skylda til að borga þá fjárfestingu fyrst til baka.“
Að mati Þórólfs ætti einfaldlega að rífa kísilverið. „Það er allt of nálægt byggð. Nú þurfum við Íslendingar að fara að hugsa um annað en hrávinnsluiðnað, nóg er nú þegar af slíku hér á landi. Það er ekki framtíð okkar Íslendinga að vera hér með mengandi stóriðju. Framtíðin felst í okkar hugviti. Við ættum að vera að einbeita okkur meira að grænmetisrækt, fiskeldi á landi, forritun og tæknigeiranum og öðru slíku. Það er komið gott betur en nóg af stóriðju sem þessari.“
Spurður hvort hann telji að með úrbótum, sem norska ráðgjafafyrirtækið Multiconsult leggur til, verði hægt að starfrækja kísilverið í Helguvík í sátt við íbúana svarar Þórólfur: „Ef reka á kísilver í sátt við samfélagið verður að hafa það fjær byggð en raunin er í þessu tilviki.“ Hann bendir á að kísilverið í Helguvík sé aðeins í rúmlega kílómetra fjarlægð frá leikskóla og skóla.
Hann segir það sína tilfinningu að flestir íbúar í Reykjanesbæ vilji einfaldlega losna við kísilverið fyrir fullt og allt. Þeir hafi þurft að þola mengun frá verksmiðjunni mánuðum saman á rekstartímanum og líkamleg óþægindi sem henni fylgdi.
Andstæðingar stóriðju í Helguvík eru með hópmálsókn vegna kísilversins í undirbúningi. Hann segir að áður en að henni komi verði beðið niðurstöðu úttektar Ríkisendurskoðunar á aðkomu ríkisins að aðdraganda og eftirmálum þess að kísilverksmiðjan tók til starfa. Stefnt er að því að úttektin verði tilbúin í lok mars. Þórólfur segir samtökin ekki hætt við málsóknina enda eðlilegt að setja fram skaðabótakröfur vegna m.a. þess heilsufarstjóns sem fólk hefur orðið fyrir.
Þá bendir Þórólfur á að Reykjanesbær hafi ekki sagst geta krafist lokunar verksmiðjunnar þar sem hann væri bundinn af samningum við fyrirtækið og myndi eiga skaðabótakröfu yfir höfði sér. Nú sé komin upp ný staða, félagið sé farið í þrot og spurning hver afstaða bæjarstjórnar sé nú til málsins. Samningarnir hljóti að falla úr gildi með gjaldþroti og þurfi að endurnýja, ef vilji bæjarstjórnar standi til þess, ef nýtt félag verði stofnað.
„Besta leiðin til að útkljá þetta mál er að hér í Reykjanesbæ verði haldin bindandi en ekki ráðgefandi íbúakosning um það hvort að íbúar vilji halda Helguvík sem stóriðjusvæði af þessari tegund.“
Þórólfur er flokksbundinn Pírati og mun mögulega fara fram fyrir flokkinn í Reykjanesbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hann segir afstöðu Pírata á Suðurnesjum þá að Helguvík sé ekki staður fyrir mengandi stóriðju.