Tónlistarmaðurinn Tómas Magnús Tómasson er látinn, 63 ára að aldri. Hann var bassaleikari Stuðmanna, Þursaflokksins og fleiri hljómsveita. Hann fæddist 23. maí 1954.
Fjölmargir vinir hans og samferðamenn í gegnum tíðina hafa greint frá andláti hans á samfélagsmiðlum og vottað Tómasi virðingu sína.
„Í dag var óvenjulegur dagur - á árvissu afmæli mínu fékk ég fregnina um að Tómas Magnús Tómasson aldavinur minn og félagi hefði kvatt þessa okkar skömmu jarðvist. Ég syrgi hann og kveð með virktum - einstakur öðlingur til orðs og æðis.“ Þetta skrifar tónlistarmaðurinn Valgeir Guðjónsson um vin sinn á Facebook.
Björgvin Halldórsson minnist einnig vinar síns og segir á Facebook: „Þetta er sorgarfregn sem erfitt er að meðtaka. Hann var með eindæmum skemmtilegur og orðheppinn og afbrags tónlistarmaður. Ég geymi margar minningarnar um Tomma og sérstaklega okkar tíma í Englandi þegar við bjuggum saman í Dartford og þegar við unnum að Vísnaplötunum góðu. Guð blessi minningu Tomma...Hvíl í friði vinur.“