Nafnið Andrej hlaut ekki náð fyrir mannanafnanefnd en nefndin kvað upp níu úrskurði í desember. Þetta er eina nafnið sem var hafnað í þessum níu úrskurðum. Ritháttur nafnsins Andrej telst ekki samræmast við almennum ritreglum íslensks máls þar sem tvíhljóðið ei/ey er ekki ritað ej í íslensku. Þetta segir í rökstuðningi í úrskurðinum.
Þau eiginnöfn sem voru samþykkt eru: Geimar, Ljóney, Íselín, Brimþór og Guðna. Þessi nöfn falla öll að íslenska beygingakerfinu.
Tvö millinöfn voru samþykkt og það eru: Rokk og Hörgdal.
Í rökstuðningi með báðum millinöfnunum segir: „Millinafnið Hörgdal er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn.“
Í vikunni var lagt fram nýtt frumvarp um mannanöfn. Verði það samþykkt verður meðal annars mannanafnanefnd lögð niður.