Lögreglan lýsir eftir Ríkharði

Ríkharður Pétursson er fæddur árið 1969 og er tæplega fimmtugur.
Ríkharður Pétursson er fæddur árið 1969 og er tæplega fimmtugur. Ljósmynd/Aðsend

Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Ríkharði Péturssyni fæddum árið 1969. Hann er meðalmaður á hæð og grannvaxinn. Ríkharður fór frá heimili sínu að Eyrarvegi 46 á Selfossi um kl. 16:00 síðastliðinn þriðjudag en ekki er vitað um ferðir hans eftir það. Hann var klæddur í svartar buxur, svarta úlpu og svarta húfu með gulri áletrun.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ríkharðs eftir kl. 16:00 sl. þriðjudag eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Suðurlandi í síma 444-2000, 112 eða á einkaskilaboðum á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert