Klofin um bestu framtíðarkosti

Hópur fólks kom að sunnan til að sitja hreppsnefndarfundinn í …
Hópur fólks kom að sunnan til að sitja hreppsnefndarfundinn í Árneshreppi í gær. Lent var á Gjögri og þar beið vél flugfélagsins Ernis eftir fundarmönnum. mbl.is/Sunna

Enn eitt skrefið í undirbúningi Hvalárvirkjunar var stigið á fundi hreppsnefndar Árneshrepps í gær er skipulagstillögur vegna virkjunarinnar voru samþykktar. Fimm nefndarmenn í fámennasta sveitarfélagi landsins bera þá ábyrgð að ákveða framhaldið. Þrír þeirra eru nú fylgjandi virkjun en tveir eru á móti.

Oddvitinn til fundar á vélsleða

„Það er tuttugu mínútna seinkun,“ tilkynnir starfsmaður flugfélagsins Ernis hópi fólks sem saman kominn er á Reykjavíkurflugvelli í éljamuggu í gærmorgun. Ferðinni er heitið á Gjögur til að sitja hreppsnefndarfund í Árneshreppi. Það er ófært landleiðina, eins og iðulega á þessum árstíma. Oft er ekki mokað vikum saman frá byrjun janúar og fram í mars. Því er flogið tvisvar í viku, þegar veður leyfir, og rutt frá Gjögri inn í Norðurfjörð. Oddviti hreppsins nýtur ekki góðs af því. Hann er búsettur í Djúpuvík, sunnan Gjögurs, og enginn er moksturinn frá hans heimahögum. Því þarf hann að mæta til fundarins, sem fram fer á hreppsskrifstofunni í Norðurfirði, á vélsleða. Ferðin tekur 40 mínútur.

Hreppsnefndin á því ekki að venjast að áhorfendur séu að fundum hennar. En augu margra hafa beinst að Strandamönnum síðustu mánuði eftir að skriður komst á hugmyndir um Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði.

Reykjarfjarðarkamb, sem ævinlega er kallaður Kamburinn, ber tignarlega við himin …
Reykjarfjarðarkamb, sem ævinlega er kallaður Kamburinn, ber tignarlega við himin við byggðina á Gjögri í Árneshreppi. mbl.is/Sunna

Nokkrir sérfræðingar í skipulagsmálum hafa verið boðaðir á fundinn en að auki hefur Sigurður Gísli Pálmason, aðaleigandi IKEA á Íslandi, ákveðið að mæta við annan mann. Hann hefur látið sig málefni Árneshrepps varða að undanförnu og meðal annars boðist til að greiða fyrir mat á kostum virkjunar annars vegar og verndunar hins vegar. Á hreppsnefndarfundinum á einmitt að taka afstöðu til boðs hans.

Það birtir loksins til í borginni og hópurinn að sunnan kemst loks í loftið. Eftir tæplega hálftíma flug skýjum ofar rofar skyndilega til og tilkomumiklir tindar fjallanna á Ströndum í fögrum vetrarskrúða birtast og bjóða aðkomufólkið velkomið til afskekktustu byggðar Íslands.

Mjólkin kom með flugi

Ólafur Valsson, sem nýverið tók við rekstri Kaupfélagsins í Norðurfirði, er kominn á flugvöllinn til að taka á móti vörum. Vika er síðan þær bárust síðast. Hann fagnar því mjólkinni sérstaklega. Ýmislegt annað kemur með flugi, m.a. pakkar með nýju parketi. Einhver er að fara í endurbætur í sveitinni. Ólafur mun svo líka bera út póstinn, sem kom að sunnan, til sveitunga sinna.

Hreppsskrifstofan í Norðurfirði í Árneshreppi var þétt setin í gær …
Hreppsskrifstofan í Norðurfirði í Árneshreppi var þétt setin í gær og þurftu áheyrendur að sitja frammi og gægjast inn í gegnum dyragættina. mbl.is/Sunna

Varaoddvitinn hefur það hlutverk að ryðja veginn frá Norðurfirði og að Gjögri. Hann hefur einnig það hlutverk að blása snjónum af flugvellinum. Í Árneshreppi hafa nefnilega flestir marga hatta því aðeins rúmlega 30 manns hafa þar orðið vetursetu.

Eva Sigurbjörnsdóttir oddviti tekur á móti hersingunni á hreppsskrifstofunni sem er í sama húsi og Kaupfélagið. Húsnæðið er lítið og návígið mikið þegar fimm hreppsnefndarmenn og þrír sérfræðingar setjast sín hvorum megin við skrifborðið. Aðrir gestir verða að sitja frammi og fylgjast með í gegnum dyragættina.

Skömmu eftir að fundurinn hefst spangólar hundur fyrir utan gluggann. Annars ríkir kyrrðin ein í fjallasalnum sem umlykur byggðina í Norðurfirði.

Unnið að samfélagsrannsókn

Tvennt er á dagskrá fundar hreppsnefndar; skipulagstillögurnar og boð Sigurðar Gísla um kostamat.

Taka þarf tillit til athugasemda og umsagna sem bárust um tillögu að breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagstillögu. Í þeim er fyrst og fremst þrennt lagt til: Að leggja 25 kílómetra langa vinnuvegi um virkjunarsvæðið, staðsetningu efnisnáma og vinnubúða við Hvalá. Nýverið lagði VesturVerk, sem áformar Hvalárvirkjun, til að vinnubúðirnar gætu eftir að framkvæmdum lýkur sinnt hlutverki gestastofu. Hreppsnefnd hefur enn ekki tekið afstöðu til þess boðs frekar en annarra verkefna sem VesturVerk hefur boðist til að fara í verði af virkjun.

Á fundi hreppsnefndar Árneshrepps í gær voru samþykktar skipulagstillögur þar …
Á fundi hreppsnefndar Árneshrepps í gær voru samþykktar skipulagstillögur þar sem ráð er gert fyrir vinnuvegum um virkjanasvæðið. Vegirnir eru merktir með tvöfaldri rauðri línu á kortinu. Þeir eru hugsaðir til þess að koma rannsóknartækjum á svæðið í sumar og ef hreppsnefnd fellst á framkvæmdaleyfi vonast VesturVerk til þess að geta hafið lagningu þeirra er snjóa leysir í vor. mbl.is/Kristinn Garðarsson

Fulltrúi frá Verkís, sem gerði skipulagstillögurnar fyrir sveitarfélagið og vann skýrslu um mat á umhverfisáhrifum Hvalárvirkjunar fyrir VesturVerk, kynnir á fundinum samantekt á athugasemdum sem bárust og viðbrögð við þeim. Athugasemdirnar lúta m.a. að því að samfélagsleg áhrif virkjunar hafi ekki verið metin nægilega og þá lýstu margir áhyggjum sínum af raski vegna lagningar vega og efnisnáma, sérstaklega í ljósi þess að ekkert framkvæmdaleyfi fyrir virkjun hefur enn verið gefið út. Í máli fulltrúans kemur fram að brugðist hafi verið við athugasemdum af hálfu VesturVerks með því að fá óháðan aðila til að rannsaka samfélagsáhrifin. Þá sé skerpt á ýmsum atriðum varðandi frágang og umgengni við veglagninguna í viðbótum við skipulagstillögurnar sem nú bíða afgreiðslu.

Fundarmenn ræða um athugasemdirnar sem bárust, m.a. þá sem kom frá Landvernd þar sem gagnrýndar voru „ámátlegar tilraunir vinnslufyrirtækis til að bera fé á hreppinn“ í formi vilyrða um fjármögnun innviðauppbyggingar verði af virkjun. Eva segir Landvernd að sínu mati beita mjög vafasömum aðferðum við að koma höggi á fólk. Hreppsnefndarmaðurinn Guðlaugur Ágústsson tekur undir þetta og bendir á að ef Landvernd þyki skipulagstillögurnar brjóta í bága við náttúruverndarlög þá hljóti samtökin að fara í mál út af því á grundvelli þeirra laga.

Enn margt ófrágengið

Tveir hreppsnefndarmenn vilja fresta afgreiðslu tillagnanna. Það eru þau Hrefna Þorvaldsdóttir og Ingólfur Benediktsson varaoddviti. Þau tvö eru andvíg virkjun en meirihluti hreppsnefndar hafnar þeirri tillögu og svo fer að skipulagstillögurnar eru samþykktar með þremur atkvæðum. Hrefna og Ingólfur leggja fram minnisblað þar sem fram kemur m.a. að ljóst sé að virkjunaráformin séu mjög róttækt inngrip í náttúru og samfélag Árneshrepps og mikilvægt sé að kanna kosti þess að stofna þjóðgarð eða annað verndarsvæði snemma í ferlinu.

mbl.is/Kristinn Garðarsson

Um það fjallaði einmitt síðasti dagskrárliður fundarins: Boð Sigurðar Gísla um kostamat á virkjun og verndun. Hrefna og Ingólfur eru eins og fyrr á öndverðum meiði við aðra nefndarmenn um afgreiðslu þeirrar tillögu. Þau telja einboðið áður en lengra verði haldið að meta þann valkost að vernda svæðið sem annars færi undir virkjanavegi, lón, stíflur og námur „með óafturkræfri eyðileggingu óbyggðra víðerna og fossa sem njóta verndar“.

Í umræðum um boðið segir oddvitinn að það vistspor sem sett yrði á landið með Hvalárvirkjun væri „svo lítið, svo örlítið“. Tillaga hans um að hafna boðinu „að svo stöddu“ er samþykkt. Óvíst er hins vegar hvort það mun standa áfram. 

Fundi er slitið og aðkomufólk flýtir sér út á flugvöll þar sem flugvél Ernis bíður þeirra, klukkustund lengur en áætlun gerir ráð fyrir. Eva oddviti fer hins vegar á vélsleðanum aftur til Djúpavíkur.

Skipulagstillögurnar sem samþykktar voru á fundinum í gær verða nú sendar Skipulagsstofnun sem þarf að staðfesta aðalskipulagið og yfirfara deiliskipulagið. Ekki fyrr en aðalskipulag er samþykkt mun það taka gildi. 

Enn er margt ófrágengið áður en koma mun að umræðu hreppsnefndar Árneshrepps um útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir Hvalárvirkjun. Ljóst er að af því verður ekki fyrr en eftir kosningar og þá mun sá kaleikur hafna í höndum nýrrar hreppsnefndar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert