Páll Magnússon, formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, hefur kallað eftir upplýsingum um mál Eggerts Einer Nielson sem hefur verið neitað um íslenskan ríkisborgararétt þrátt fyrir að hafa búið hérlendis fyrstu sjö ár ævi sinnar.
„Ég hef þegar kallað eftir upplýsingum um hvernig málið er vaxið og hver aðdragandinn er,“ segir Páll og býst við að fá skýrslu þess efnis síðar í dag. Óskað var eftir upplýsingum bæði frá Útlendingastofnun og lögmanni Eggerts.
Hann segir að í fljótu bragði sé málið þannig vaxið að það hljóti að koma til kasta Allsherjar- og menntamálanefndar þegar næst verður ákveðið hverjir fá íslenskan ríkisborgararétt með lögum. Það er gert tvisvar á ári, fyrir þinglok um vor og haust.
„Miðað við það sem ég hef séð um málið finnst mér borðleggjandi að mál hans fái jákvæða afgreiðslu,“ segir Páll, aðspurður.
Ástæðan fyrir synjunni sem Eggert fékk er sú að þegar hann fæddist hér á landi árið 1957 fengu börn sjálfkrafa ríkisfang föður, en faðir Eggerts var danskur. Þegar hann flutti til Bandaríkjanna fékk hann svo bandarískan ríkisborgararétt.
Þessu ákvæði í lögum var breytt árið 1982 og fengu börn íslenskra mæðra sjálfkrafa íslenskan ríkisborgararétt. Lögin eru hins vegar ekki afturvirk og því var umsókn Eggerts synjað.