Örplast mælanlegt í vatni frá Veitum

Niðurstöður mælinga Orkuveitunnar samsvara því að 1-2 örplastagnir finnist í …
Niðurstöður mælinga Orkuveitunnar samsvara því að 1-2 örplastagnir finnist í hverjum 5 lítrum vatns. mbl.is/Heiddi

0,2-0,4 plastagnir fundust í hverjum lítra af vatni í vatnssýnum sem safnað var úr vatnsveitu Veitna í Reykjavík. Í fréttatilkynningu sem Veitur senda frá sér segir að niðurstöðurnar séu mun betri, en þær sem fram hafi komið í erlendri skýrslu um örplast í neysluvatni víða um heim.  

„Þar kom fram að 83% þeirra 159 sýna sem skýrslan byggir á, og tekin voru víðs vegar í heiminum, innihéldu að meðaltali tuttugufalt og allt að 400-falt magn plastagna miðað við það sem fannst í neysluvatni Reykvíkinga,“ segir í fréttinni.

Niðurstöður mælinga Orkuveitunnar samsvara því að 1-2 slíkar agnir finnist í hverjum 5 lítrum vatns. Eru sýnin sem tekin voru sögð hafa verið stór, eða á bilinu 10-150 lítrar.

„Þrátt fyrir að þessar niðurstöður gefi vísbendingar um ágæta stöðu þarf að taka þeim með fyrirvara. Fyrir því eru tvær ástæður; Ekki er til viðurkennd sýnatöku- og greiningaraðferð þegar kemur að rannsóknum á örplasti í neysluvatni. Til að minnka skekkju sem getur orðið vegna söfnunar, meðhöndlunar og talningar á litlum sýnum var ákveðið að taka mun stærri sýni en í erlendu rannsókninni sem nefnd er að ofan. Raunar hafa höfundar hennar bent á að sýni þeirra hafi verið lítil og hafa tilkynnt að nú standi yfir framhaldsrannsóknir sem standast eðlilegar vísindalegar kröfur,“ segir í frétt Veitna.

Hvorki til reglugerð né viðmiðunarmörk um örplast í neysluvatni

Fyrirtækið viti ekki til þess að áður hafi verið skoðað hvort örplast sé að finna í neysluvatni á Íslandi og því sé enginn samanburður til fyrir vatn annarsstaðar á landinu. Engar reglugerðir séu heldur til um örplast í neysluvatni, né heldur séu til viðmiðunarmörk, eða krafa gerð um hreinsun örplasts úr neysluvatni „og ekki er til heildstætt mat á magni og uppruna plasts í umhverfinu.“

Veitur muni engu að síður áfram fylgjast með örplasti í neysluvatni Reykvíkinga og vísindalegri umræðu hér á landi og erlendis um málið. Í vísindagrein í nýjasta tölublaði Current Opinion in Environmental Science and Health komi fram að enn séu ekki til marktæk gögn um örplast í neysluvatni eða hvaða áhrif það hefur. „Sýnatökur og framsetning gagna séu ekki samræmd og endurteknar rannsóknir skorti sem dragi úr áreiðanleika gagnanna og marktækni niðurstaðna.  Mikilvægt sé þess vegna að innleiða samræmdar aðferðir við mælingar á örplasti í neysluvatni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert