Þrír jarðskjálftar sem mældust um eða yfir 3 stig urðu við Grímsey í nótt. Í gærkvöldi varð stærsti skjálftinn í yfirstandandi hrinu og mældist hann 4,1 stig. Tugir skjálfta urðu í nótt, flestir austnorðaustur af eyjunni. Á síðustu tveimur sólarhringum hafa rúmlega 1.000 skjálftar orðið og er hrinan enn í gangi.
Á þessu sama tímabili hafa sjö skjálftar mælst yfir 3 stig og 143 skjálftar verið 2-3 stig samkvæmt óyfirförnum frumniðurstöðum Veðurstofunnar.
Gunnar Guðmundsson, sérfræðingur Veðurstofu Íslands, sagði í samtali við mbl.is í gær að skjálftarnir ættu flestir upptök sín á svipuðu svæði, í sigdal vestarlega í Skjálfandadjúpinu. „Þarna eru mörg misgengi og það eru líklega ný og ný misgengi að opnast þarna,“ sagði hann um ástæður skjálftanna. Hins vegar væri þarna einnig mikið jarðhitasvæði svo samverkandi öfl gætu verið að verki. Þá hefði einnig verið eldvirkni norður af svæðinu í fortíðinni.
Gunnar sagði að svæðið væri svokallað sniðreksbelti sem kallast Grímseyjarbeltið og er hluti af Tjörnesbeltinu. Á Grímseyjarbeltinu væri mesta rek svæðisins. „Mér finnst þetta minna á skjálftahrinu á Hengilsvæðinu á árunum 1994 til 1998. Þar voru stöðugar hrinur í 1-2 daga sem tóku sig svo upp aftur og aftur.“
Hann sagði erfitt að átta sig nákvæmlega á hver meginorsök skjálftanna væri. „Það eru mjög oft skjálftar á þessu svæði,“ segir hann og bætir við að af þeim sökum séu Grímseyingar mjög vanir hreyfingunum og kippi sér sjálfsagt ekki upp við smáskjálftana.