Mjög mikið annríki hefur verið hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í morgun vegna vatnsleka. „Við erum með bíla í átta útköllum vegna vatnsleka og það bíður álíka fjöldi,“ segir slökkviliðsmaður á vakt í samtali við mbl.is. Þegar sé slökkviliðið búið að sinna um 30 útköllum vegna vatnsleka það sem af er morgni.
Bæði er um að ræða vatnsleka hjá íbúðarhúsum og fyrirtækjum og eru nokkur verkefnin töluvert umfangsmikil. Þannig var tilkynnt um bílakjallari á Skógarvegi sem er hálffullur af vatni og eins er skemma Tækniskólans úti í Skerjafirði umflotin af vatni.
Starfsmenn umhverfissviðs Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa einnig verið önnum kafnir í morgun við að hreinsa frá niðurföllum.
„Við erum á þeysingi um allt,“ segir Ísak Möller rekstrarstjóri í hverfastöðinni við Jafnasel í Reykjavík við mbl.is í morgun. „Það sest mikið krap á ristarnar. Við sinnum engu öðru en þessu í augnablikinu og erum að reyna að koma í veg fyrir að tjón verði.“