Seinkun er á mörgum flugferðum Icelandair frá Norður-Ameríku en aflýsa þurfti flugi félagsins frá London í gærkvöldi. Samkvæmt svörum Icelandair á samfélagsmiðlum til farþega skýrist þetta af slæmu veðri.
Á vef Keflavíkurflugvallar sést að flugferðum Icelandair frá Orlando, Denver og Seattle til Íslands var aflýst í gærmorgun og eins frá Kaupmannahöfn, Ósló og Heathrow-flugvelli í London seint í gærkvöldi.
Vélar sem áttu að lenda frá Stokkhólmi og Gatwick-flugvelli á tólfta tímanum í gærkvöldi lentu ekki fyrr en á fjórða tímanum í nótt. Flugi frá JFK-flugvelli í New York sem átti að lenda 6:15 hefur verið aflýst og flugi frá Newark-flugvelli, Washington og Chicago hefur verið frestað um nokkrar klukkustundir.
Eins urðu miklar seinkanir á flugi easyJet og Wizz Air frá Íslandi í gærkvöldi vegna storms á Keflavíkurflugvelli.
Flugi Icelandair til München sem fara átti í loftið klukkan 7:20 hefur verið seinkað til klukkan 13 í dag.
@Icelandair our 4:30pm flight to Heathrow was cancelled at about 8:30pm after multiple delays, we have been sent to a hotel with no communication of what is going on or when our flight tomorrow will be. We are also extremely hungry and have been given no food. PLEASE HELP ASAP
— Patricia Ryan (@patriciafryan88) February 25, 2018