Nýr formaður ungra bænda

Stjórn Samtaka ungra bænda.
Stjórn Samtaka ungra bænda.

Jóna Björg Hlöðversdóttir frá Björgum í Þingeyjarsýslu var kjörin formaður Samtaka ungra bænda um helgina en Einar Freyr Elínarson, fráfarandi formaður, hafði lokið kjörtímabili sínu og gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Jafnframt hafði Bjarni Rúnarsson lokið sínu kjörtímabili og gaf ekki kost
á sér til endurkjörs. Ný stjórn er svo skipuð: Jóna Björg Hlöðversdóttir formaður, Guðmundur Bjarnason, Birgir Örn Hauksson, Jón Elvar Gunnarsson og Jóhannes Kristjánsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert