Úrkoma hefur verið óvenjumikil um mikinn hluta landsins í nýliðnum febrúarmánuði. Samkvæmt bráðabirgðatölum Trausta Jónssonar veðurfræðings mældist úrkoman í Reykjavík 159 millimetrar. Er það um 90 prósent umfram meðallag síðustu tíu ára og það mesta í febrúar á þessari öld.
Úrkoman í febrúar 2003 var þó litlu minni. Fyrr á tíð er vitað um fjóra úrkomumeiri febrúarmánuði í Reykjavík, síðast árið 1991. Úrkoma á Akureyri er nærri meðallagi í mánuðinum.
Eins og landsmönnum er fullkunnugt um var stormasamt í mánuðinum og samgöngutruflanir tíðar. Þó var snjór víðast hvar ekki mjög mikill miðað við árstíma, að sögn Trausta.
Meðalhiti í Reykjavík virðist ætla að verða +1,0 stig í febrúar. Það er -0,2 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára, en +0,6 ofan meðallags áranna 1961-1990. Á Akureyri er meðalhitinn +1,1 stig, 1,4 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. sisi@mbl.is