Tveir létust í umferðarslysi

Þeir sem létust voru báðir erlendir ferðamenn.
Þeir sem létust voru báðir erlendir ferðamenn.

Erlendir ferðamenn, karl og kona, létust í árekstri vörubifreiðar og fólksbifreiðar á Lyngdalsheiðarvegi í dag. Veginum var lokað á meðan viðbragðsaðilar unnu á vettvangi en hann hefur nú verið opnaður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Búast má við umferðartöfum fram eftir kvöldi meðan vörubifreiðin er fjarlægð. 

Rannsókn málsins er í höndum rannsóknardeildar lögreglunnar á Suðurlandi og nýtur hún aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Teknar hafa verið skýrslur af vitnum og af ökumanni vörubifreiðarinnar. Hann, ásamt farþega sem einnig var í bílnum, voru fluttir til aðhlynningar á sjúkrahúsi en meiðsl þeirra eru ekki alvarleg.

Lögregla gat ekki veitt frekari upplýsingar um rannsóknina að sinni.

Búast má við umferðartöfum á meðan vörubifreiðin er fjarlægð af …
Búast má við umferðartöfum á meðan vörubifreiðin er fjarlægð af vettvangi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert