Ferðamennirnir sem lentu í umferðarslysi við Kirkjubæjarklaustur í fyrradag eru ekki í lífshættu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Skýrslur hafa verið teknar af bandarískum ökumanni og samlanda hans í öðru ökutækinu vegna umferðarslyssins.
Þau hafa bæði verið flutt á almenna deild.
Eftir er að ræða við taívanskan ökumann hinnar bifreiðarinnar en til stóð að flytja hann á almenna deild síðar í dag.
Málið er til áframhaldandi rannsóknar.