Umhverfisstofnun hefur ákveðið að loka svæði meðfram Fjaðrárgljúfri. Fjöldi ferðamanna hefur komið að gljúfrinu að austan í hlýindum og mikilli vætutíð en það hefur gert það að verkum að álag á göngustíg og umhverfi hans er gríðarlegt.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisstofnun.
Umrætt svæði er nr. 703 á náttúruminjaskrá en lokunin er gerð bæði af öryggisástæðum og til að vernda gróður í umhverfi göngustígsins.
Stefnt er að því að endurskoða lokunina eigi síðar en innan tveggja vikna eða ef ástand breytist. Lokunin er samkvæmt 25 gr. laga um náttúruvernd.